Hörður og félagar úr leik í Europe Cup
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sex stig á rúmum 17 mínútum í gær þegar lið hans Limburg Utd. lá 98-70 gegn hollenska liðinu Donar Groningen í Europe Cup í gærkvöldi. Karfan.is greinir frá þessu.
Limburg hefur tapað öllum fimm leikjunum sínum í B-riðli og vonir þeirra um að komast upp úr þessu fyrsta stigi riðlakeppninnar því engar. Hörður hefur verið með 4,8 stig, 1 frákast og 2,7 stoðsendingar að meðaltali í leik í keppninni.