Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hörður í úrvalsliði 7.-12. umferðar
Fimmtudagur 28. júlí 2005 kl. 15:18

Hörður í úrvalsliði 7.-12. umferðar

Markamaskínan Hörður Sveinsson var eini Suðurnesjamaðurinn sem hlaut viðurkenningu fyrir frammistöðu sína í 7.-12. umferð Landsbankadeildarinnar í dag.

Allan Borgvardt, leikmaður FH, var valinn maður umferðanna, Ólafur Jóhannesson, var valinn þjálfari umferðanna og Kristinn Jakobsson, dómari umferðanna.

Lið umferðanna er eftirfarandi:
Markvörður:
Daði Lárusson, FH.

Varnarmenn: Auðun Helgason, FH, Bjarni Ólafur Eiríksson, Val, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Val, Guðmundur Sævarsson, FH.

Miðjumenn: Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Val, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, ÍA, Matthías Guðmundsson, Val, Viktor Bjarki Arnarsson, Fylki.

Framherjar: Allan Borgvardt, FH, Hörður Sveinsson, Keflavík.

Hörður er vel að viðurkenningunni kominn en hann hefur verið á skotskónum í síðustu leikjum og hefur m.a. gert 6 mörk í síðustu þremur leikjum Keflavíkur. 4 gegn Etzella, 1 gegn ÍBV og 1 gegn KR. Hörður verður í framlínu Keflavíkur í kvöld þegar liðið mætir FC Etzella á Laugardalsvelli kl. 19:15 í UEFA keppninni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024