Bygg
Bygg

Íþróttir

Hörður Axel stefnir hærra
Miðvikudagur 19. júní 2013 kl. 08:09

Hörður Axel stefnir hærra

Körfuknattleiksmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson ákvað að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við þýska félagið Mitteldeutscher BC og mun því ekki leika með liðinu á næstu leiktíð eftir að hafa komið til félagsins frá Keflavík sumarið 2011. Áður lék Hörður einnig með Njarðvík en hann er uppalinn Fjölnismaður.

„Ég stefni hærra en það getustig sem ég var að spila á,“ sagði Hörður þegar Víkurfréttir náðu tali af honum en Hörður er þekktur fyrir mikinn metnað. Hann segist þó lítið vita um hvert framhaldið verði. „Eins og er er ekkert sem hægt er að tala um, bara þreifingar enda markaðurinn ekki byrjaður að rúlla ennþá,“ sagði Hörður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í frétt Mitteldeutsche Zeitung segir að ákvörðun Harðar hafi komið forráðamönnum MBC í opna skjöldu. Þeir hafi fengið þær upplýsingar frá umboðsmanni Harðar að hann vildi hafa alla möguleika opna. Í fréttinni segir einnig að Hörður hafi tekið gríðarlegum framförum á síðustu leiktíð og því hafi miklar vonir verið bundnar við hann á komandi leiktíð.