Hörður Axel spilar með Keflavík
Semur til fjögurra ára
Landsliðsbakvörðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson hefur samið við körfuknattleiksdeild Keflavíkur til næstu fjögurra ára. Klásúla er í samning hans, þannig ef ákjósanlegt tilboð frá erlendu liði berst fyrir 1. október, þá mun körfuknattleiksdeild Keflavíkur ekki standa í vegi fyrir því. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Hörður Axel er öllum hnútum kunnugur hjá Keflavík, en hann gekk til liðs við félagið 2008 og átti þar góðan feril þar til hann hélt erlendis í atvinnumennsku árið 2011, en þá gekk hann til liðs við þýska félagið Mitteldeutscher. Hörður Axel hefur frá því leikið með spænska félaginu Valladolid, gríska félaginu Aries Trikala og tékkneska félaginu ČEZ Basketball Nymburk.