Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

  • Hörður Axel mun bara ræða við Keflavík
  • Hörður Axel mun bara ræða við Keflavík
    Hörður blóðugur í baráttuleik gegn Njarðvík
Föstudagur 22. apríl 2016 kl. 11:03

Hörður Axel mun bara ræða við Keflavík

Orðinn leiður á flakkinu

Leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson gæti mögulega leikið á Íslandi á næsta tímabili, en hann hefur verið atvinnumaður síðustu fimm árin. Í viðtali við Morgunblaðið segir Hörður að hann muni ekki ræða við nein íslensk félög nema Keflavík. Hann segist eiga óuppgerða hluti með félaginu og nefnir að þar hafi honum liðið mjög vel. „Það þyrfti eitthvað rosalega stórt að gerast til þess að spilaði ekki í Keflavíkurtreyjunni ef ég spila heima. Þá væri það bara Fjölnir,“ segir Hörður í viðtalinu en hann er uppalinn Fjölnismaður en lék í þrjú tímabil með Keflvíkingum áður en hann hélt í atvinnumennskuna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024