Íþróttir

Hörður Axel fer til Grikklands
Föstudagur 1. júlí 2016 kl. 15:35

Hörður Axel fer til Grikklands

Körfuknattleiksmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson mun ekki spila með Keflavík á næsta tímabili eins og til stóð. Hann hefur nú samið við lið í Grikklandi og mun því framlengja dvöl sína þar í landi eitthvað áfram.

Hörður samdi við gríska liðið Rethymno Cretan Kings B.C. sem endaði í áttunda sæti grísku deildarinnar á síðasta tímabili. Hann var á mála hjá Trikala Aries sem endaði einu sæti neðar. Karfan.is greinir frá en Hörður sagði einnig frá þessu á Facebook síðu stuðningsmanna Keflavíkur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hörður Axel samdi nýlega aftur við Keflavík til fjögurra ára en í samningi hans var klásúla um að ef hann fengi boð að utan fyrir 1. október myndi Keflavík ekki standa fyrir vegi hans

Það þarf ekki að orðlengjaað þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Keflvíkinga. Stuðningsmenn og aðstandendur liðsins sáu fram á bjartari tíma með landsliðsmanninn innanborðs. Hörður lék síðast með bítlabæjarliðinu árið 2008 og átti þar góðan feril þar til hann hélt erlendis í atvinnumennsku árið 2011, en þá gekk hann til liðs við þýska félagið Mitteldeutscher. Hörður Axel hefur frá því leikið með spænska félaginu Valladolid, gríska félaginu Aries Trikala og tékkneska félaginu ČEZ Basketball Nymburk.

Hér er viðtal við Hörð í Víkurfréttum sem birt var um miðjan maí.