HSS
HSS

Íþróttir

Laugardagur 1. mars 2003 kl. 17:00

Hnefaleikabardagi í Reykjanesbæ

Í Keflavík í dag voru þrír hnefaleikabardagar haldnir og var töluverður fjöldi áhorfenda sem fylgdist með þeim. Hnefaleikafélag Reykjaness stóð fyrir bardögunum og sagði Guðjón Vilhelm forsvarsmaður klúbbsins að stefnt væri að því að halda slíka bardaga með reglulegu millibili í framtíðinni í Keflavík: „Við erum að skoða möguleikana á því að halda svona bardaga á laugardagskvöldum og ná þannig upp sannri boxstemningu.“ Bardaginn sem haldinn var í dag var fjármögnun fyrir hnefaleikafélagið og segir Guðjón að stefnt sé að þátttöku í mótum erlendis á næstunni: „Við erum að fara til Danmerkur og Svíþjóðar í mars og síðan er stefnt að því að taka þátt í stóru móti í Kansas í Bandaríkjunum í ágúst,“ sagði Guðjón í samtali við Víkurfréttir.

VF-ljósmynd: Guðjón hugar að Tinnu Guðrúnu í hléi.
Bílakjarninn
Bílakjarninn