Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hlaupa Strandarhlaupið í Vogum á laugardag
Mánudagur 10. ágúst 2015 kl. 10:06

Hlaupa Strandarhlaupið í Vogum á laugardag

Strandarhlaupið er hluti af fjölskylduhátíð Sveitarfélagsins Voga og fer fram laugardaginn 15. ágúst kl 11:00. Allir hlauparar eru velkomnir, byrjendur sem og lengra komnir.

Í boði eru tvær vegalengdir, 5 km og 10 km með tímatöku. Hlaupið verður ræst við íþróttahúsið í Vogum, Hafnargötu 17.  

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

5 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina. Hlaupið er út Stapaveg þar sem komið er inná malarveg. Eftir 3 km er stuttur utanvegakafli uns komið er inná göngustígakerfi þar sem hlaupið er með sjónum, umhverfis Vogatjörn og að Íþróttamiðstöðinni.

10 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina og liggur um Vatnsleysustrandarveg. 3 km eru á gömlum malarslóða, síðan á Vatnsleysustrandarvegi í fallegu sveitaumhverfi. Að lokum er hlaupinn einfaldur hringur á göngustígum bæjarins að Íþróttamiðstöðinni.

Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.
 
Skráning fer fram hér á hlaup.is. Athugið að skráningargjald hækkar á hlaupadegi og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig. Forskráning er til miðnættis föstudaginn 14. ágúst 2015. Skráning á keppnisdegi verður í íþróttahúsinu frá kl. 10 til 10:40 fyrir hlaup.

Ungmennafélagið Þróttur stendur fyrir hlaupinu. Frekari upplýsingar fást hjá Marteini framkvæmdastjóra í síma 865-3722 eða [email protected].