Hjörtur verður ekki með Hauka í 1. deildinni
Keflvíkingurinn Hjörtur Harðarson mun ekki þjálfa körfuknattleikslið Hauka í 1. deild karla á næstu leiktíð en hann var þjálfari liðsins í ár þegar liðið féll úr
,,Við fengum fullt af tækifærum til að halda okkur uppi t.d. í leikjunum gegn Þór Þorlákshöfn og ÍR en við nýttum þau því miður ekki og því fór sem fór,” sagði Hjörtur sem er ekki farinn að huga að næstu leiktíð.
,,Það er meira en að segja það að skilja við körfuboltann en mig verður örugglega farið að kitla eitthvað í haust svo ég sé bara til hvað ég geri,” sagði Hjörtur fráfarandi þjálfari Hauka.
VF-mynd/ Hjörtur í gulu með Grindavík en hann segir nú skilið við Hauka.