Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hilmar og Sesselja sigruðu í púttmóti Íslandsbanka
Fimmtudagur 14. apríl 2005 kl. 16:21

Hilmar og Sesselja sigruðu í púttmóti Íslandsbanka

Í dag 14. apríl var haldið Púttmót í Röstinni, alls tóku 45 þátt í mótinu sem var að hefðbundnu sniði og leiknar 2 x 18 holur, sigurvegarar urðu eftirfarandi:

Kvennaflokkur:
1.  sæti  Sesselja  Þórðardóttir  á 66 höggum
2.  sæti  Hrefna Ólafsdóttir       á 67 höggum
3.  sæti  Unnur Óskarsdóttir      á 68 höggum eftir umspil við Maríu  Einarsdóttur sem einnig var á 68 höggum.
Flest bingó var svo Hrefna Ólafsdóttir með eða 10.

Karlaflokkur:
1.  sæti  Hilmar Pétursson           á 60 höggum
2.  sæti  Guðmundur Ólafsson     á 62 höggum
3.  sæti  Hólmgeir Guðmundsson á 62 höggum
Flest bingó var Árni Guðgeirsson með eða 15.

Vinningar voru gefnir af Íslandsbankanum og afhenti fulltrúi hans vinninga.

Að móti loknu var haldinn aðalfundur Púttklúbbs  Suðurnesja og hafði Lórý Erlingsdóttir óskað eftir  að hætta sem formaður og var Ingi Gunnarsson kosinn  formaður, varaformaður Einar Guðmundsson gjaldkeri  Jón Ísleifsson ritari Sigurður Guðbrandsson og meðstjórnandi Ísleifur Guðleifsson. Næsta mót verður svo 28 apríl.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024