Herkvaðning ef menn fara að meiðast
Tómas Tómasson er oftar ekki mættur í stúkuna þegar Keflvíkingar leika í Iceland Express-deild karla og hann lifir og hrærist í heimi körfuboltans. Hann er bjartsýnn á komandi tímabil hjá sínum mönnum en Keflvíkingar hófu leik í gær þegar þeir máttu sætta sig við tap gegn Grindvíkingum í Röstinni. En hvernig líst Tómasi á komandi tímabil?
„Ég er alltaf bjartsýnn og líst alltaf vel á öll tímabil. Ég held að þetta verði gott tímabil á einhvern hátt þó að vissulega sé þetta tímabil mikillar óvissu. Við missum menn frá okkur sem skiluðu um 55 stigum til liðsins í fyrra, fyrir utan að þar á meðal eru leiðtogar liðsins til margra ára.“
Hver er að fara að springa út hjá Keflvíkingum?
„Ég held að Valur Orri muni blómstra í vetur. Svo eru strákar þarna sem geta hæglega orðið góðir, Ragnar Albertsson og Hafliði Brynjarsson þar á meðal. Valur mun koma til að spila alveg helling núna í upphafi tímabil þar sem Arnar Freyr gengur ekki alveg heill til skógar. Kannski verður full mikið álag á stráknum. Hann á að sjálfsögðu leiki í efstu deild þegar hann lék með Njarðvík og svo var hann drjúgur í 1. deildinni í fyrra. Það er þó töluverður munur á þessum deildum.“
Hver er x-faxtorinn hjá Keflavík?
„Ég held að það ráðist á karakternum í liðinu. Hvort að menn nái að mynda samhelldni og gíra sig saman. Ef að viljinn og metnaðurinn verður til staðar þá erum við í fínum málum. Ég geri væntingar til þess að Magnú Gunnarsson verði leiðtogi í liðinum og svo vonar maður að útlendingarnir vaxi í sín hlutverk.“
Hvernig líst þér á nýju leikmennina?
„Mér líst vel á þá. Þetta eru flottir strákar og duglegir. Þeir eru toppeintök að manneskjum sem er gríðarlega mikilvægt i svona litlum deildum eins og hér. Það er kannski erfitt að gera kröfur um það og oftar en ekki erfitt að aðlagast aðstöðum hérlendis fyrir þessa erlendi leikmenn sem hingað koma.“
Hver verður meiðslapésinn hjá Keflvíkingum?
„Arnar og Halldór eru meiddir nú þegar og hafa verið að glíma við erfið meiðsli. Þetta voru kallar sem átti að stóla á í vetur og ef það verður eitthvað meira um meiðsli á verður bara herkvaðning og gamlir refir verða dregnir úr grenum sínum.“
Tómas telur að bæði Keflvíkingar og grannar þeirra, Njarðvíkingar séu að ganga í gegnum nákvæmlega sama tímabilið. Þð hurfu á einu bretti lykilmenn úr liðunum og það sé erfitt að fylla í þeirra skörð. „Þessi lið eru vön að vera í toppbaráttu og þetta snýst að miklu leyti um það að fólk nái að tóna niður væntingarnar til þessara liða,“ segir Tómas.
Einhverjir sérstakir leikmenn sem að skilja eftir sig stærri skörð en aðrir?
„Maður á eftir að sakna manna eins og Gunnars Einarssonar. Hann er Keflvíkingur af lífi og sál og maður man eftir honum alveg frá því hann var 15-16 ára að stíga dín fyrstu skref með liðinu. Hann hefur oftar en ekki sett tóninn varnalega hjá liðinu og er alger stemningskall. Svo er Jón Norðdal búinn að vera þarna lengi og hans verður saknað. Svo er sárt að missa leikmenn eins og Þröst sem að hefði sennilega fengið að láta ljós sitt skína í vetur en aðrir verða víst að stíga upp, þannig er það bara.“
Veikleikar?
„Liðið er rosalega þunnskipað og stór hluti þess er algerlega reynslulaus.“
Styrkleiki Keflvíkinga er að mati Tómasar að þeir hafa reynslumikinn þjálfara og hefðin er gríðarlega sterk. Auk þess eru öflugir stjórnarmenn sem vaða eld og brennistein fyrir félagið, það er ótrúlega mikilvægt.
Mynd: Tómas var staddur í Frægðarhöllinni (Hall of fame) á dögunum með félaga sínum Tex Winter.