Helstu stuðningsmenn „Strákanna okkar“ koma frá Reykjanesbæ
Svo virðist sem félagarnir frá Reykanesbæ Hafsteinn Ingibergsson, Gísli Jóhannsson, Ólafur Thordersen og Einar Sigurpálsson, séu mest áberandi stuðningsmenn Íslands í handboltanum um þessar mundir. Þeir hafa farinn mikinn í Gigantium-höllinni í Álaborg þar sem Evrópumótið fer nú fram og nú síðast í gær sást til þeirra með stærðarinnar borða af Guðmundi Guðmundssyni fyrrum þjálfara íslenska liðsins. Guðmundur mun taka við þjálfun danska liðsins að loknu Evrópumótinu.
Dómarar hópsins, þeir Gísli og Hafsteinn slógu í gegn á leiknum gegn Dönum í gær þar sem þeir hlupu með borðann um alla höllina við mikla kátínu íslensku stuðningsmannanna.
Tengd frétt: Einu handboltaáhugamenn Suðurnesja - komust allir í sjónvarpið