Helgi verður áfram með Njarðvík
Helgi Bogason verður áfram þjálfari hjá knattspyrnuliði Njarðvíkur en meistaraflokkurinn hóf undirbúning sinn að komandi leiktíð í gær.
Hræringar hafa verið á leikmannahóp Njarðvíkurliðsins en Snorri Már Jónsson, fyrirliði, mun leika áfram með liðinu. Þá er óvissa með Michael Jónsson og Hafstein Rúnarsson. Friðrik Árnason, markvörður, er fluttur erlendis, Jón Fannar Guðmundsson gerir ekki ráð fyrir því að leika með liðinu að nýju og Sverrir Þór Sverrisson verður í herbúðum Íslandsmeistara Keflavíkur í körfuknattleik í vetur.
Gert er ráð fyrir því að Rafn Vilbergsson verði áfram í herbúðum Njarðvíkinga og svo hefur liðið fengið Guðmund Á. Þórðarson, markvörð, að láni frá Keflavík.
www.umfn.is