Íþróttir

Helgi og Andrea klúbbmeistarar Grindavíkur
Miðvikudagur 19. júlí 2017 kl. 09:00

Helgi og Andrea klúbbmeistarar Grindavíkur

Helgi Dan Steinsson og Andra Ásgrímsdóttir urðu klúbbmeistarar Golfklúbbs Grindavíkur en mótinu lauk sl. laugardag.
Helgi Dan lék flott golf og endaði 72 holurnar á 9 undir pari. Þriðja hringinn lék hann á sex undir pari og fékk 8 fugla á hringnum. Hann fékk 23 fugla í heildina. Jón Júlíus Karlsson  varð annar á 297 höggum og Hávarður Gunnarsson var á 305.
Andrea Ásgrímsdóttir sigraði líka örugglega í kvennaflokki en hún lék á 226 höggum. Önnur varð Svanhvít Helga Hammer á 271 og þriðja Þuríður Halldórsdóttir á 263.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024