Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Íþróttir

Fimmtudagur 17. apríl 2003 kl. 11:36

Helgi Jónas og Hildur valin best

Helgi Jónas Guðfinnsson UMFG og Hildur Sigurðardóttir KR voru valin bestu leikmenn Intersport-deildar og 1. deildar kvenna á lokhófi KKÍ sem fram fór í gærkvöld í Stapanum í Njarðvík. Haukaleikmennirnir Sævar Haraldsson og Helena Sverrisdóttir voru valin bestu ungu leikmennirnir hvort í sinni deild. Besti þjálfarinn í Intersport-deild og besti dómarinn komu einnig frá Haukum, þeir Reynir Kristjánsson og Leifur Garðarsson. Besti þjálfari 1. deild kvenna var valinn Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur. Verðlaunalisti kvöldsins er annars eins og hér segir:

Besta vítanýting í 1. deild kvenna Alda Leif Jónsdóttir ÍS 84,9%

Besta vítanýting í Intersport-deild Eiríkur Önundarson ÍR 86,9%

Besta nýting úr 3ja stiga skotum í 1.d.kv. Svava Ósk Stefánsdóttir Keflavík 40,0%

Besta nýting úr 3ja stiga skotum í Intersport-deild Gunnar Einarsson Keflavík 50,0%

Flest stig í 1. deild kvenna Y. Denise Shelton UMFG 30,9

Flest stig í Intersport-deild Stevie Johnson Haukar 34,6

Flest fráköst í 1. deild kvenna Jessica Stomski KR 17,0

Flest fráköst í Intersport-deild Darrell Flake KR 14,8

Flest varin skot í 1. deild kvenna Alda Leif Jónsdóttir ÍS 2,6

Flest varin skot í Intersport-deild Michail Antropov Tindastól 3,7

Flestir stolnir boltar í 1.d.kvenna Sonja Ortega Keflavík 6,2

Flestir stolnir boltar í Intersport-deild Eugene Christopher ÍR 3,4

Flestar stoðsendingar í 1.d.kvenna Sonja Ortega Keflavík 5,4

Flestar stoðsendingar í Intersport-deild Lárus Jónsson Hamar 6,2

Besti dómari Intersport-deild Leifur Garðarsson Haukar

Besti þjálfari 1. d. kv. Einar Árni Jóhannss.. UMFN

Besti þjálfari Intersport-deild Reynir Kristjánsson Haukar

Besti erl. leikm 1. d. kv. Y. Denise Shelton UMFG

Besti erl. leikm. í Intersport-deild Stevie Johnson Haukar

Besti varnarmaðurinn í 1.d.kv. Birna Valgarðsdóttir Keflavík

Besti varnarmaðurinn í Intersport-deild Sverrir Þór Sverrisson Keflavík

Prúðasti leikmaðurinn í 1. deild kv. Alda Leif Jónsdóttir ÍS

Prúðasti leikmaðurinn í Intersport-deild Sverrir Þór Sverrisson Keflavík

Úrvalslið-lið 1. deildar kvenna, Hildur Sigurðardóttir KR, Helga Þorvaldsdóttir KR, Birna Valgarsdóttir Keflavík, Erla Þorsteinsdóttir Keflavík, Svandís Sigurðardóttir ÍS.

Úrvalslið Intersport-deildar , Helgi Jónas Guðfinnsson UMFG, Eiríkur Önundarson ÍR, Damon Johnson Keflavík, Páll Axel Vinbergsson UMFG, Páll Kristinsson UMFN, Hlynur Bæringsson Snæfell. (Tveir voru jafnir í 5.-6. sæti)

Besti ungi leikmaðurinn í 1. d. kv.Helena Sverrisdóttir Haukar

Besti ungi leikmaðurinn í Intersport-deild Sævar Haraldsson Haukar

Besti leikmaður 1. deildar kvenna Hildur Sigurðardóttir KR

Besti leikmaður Intersport-deildar Helgi Jónas Guðfinnsson UMFG

Í hófinu fékk Erla Sveinsdóttir afhent gullmerki KKÍ og þeir Júlíus Valgeirsson, Þorgrímur St. Árnason, Óskar Ó. Jónsson og Rúnar Gíslason silfurmerki KKÍ fyrir vel unnin störf fyrir körfuknattleiksíþróttina.


Frétt af vef Morgunblaðsins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn