Helgi Hólm sæmdur gullheiðursmerki Keflvíkinga
Aðalfundur Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags var haldinn í gærkvöldi. Allt að 50 manns sátu fundinn. Fundastjóri var Ellert Eiríksson. Formaður og stjórn var endurkjörin. Sæmundur Runólfsson framkvæmdastóri UMFÍ sæmdi þær Ólafíu Ólafsdóttur og Sigrúnu Sigvaldadóttur starfsmerki UMFÍ, en þær koma úr kvennaknattspyrnunni.
Sigríður Jónsdóttir formaður þróunar og fræðslusviðs ÍSÍ afhenti Bjarna Sigurðssyni formanni skotdeildar viðurkenningarskjal um vottun á fyrirmyndardeild, en skotdeildin er fyrsta skotdeildin á landinu sem hlýtur þessa viðurkenningu, og er viðurkenningin veitt til næstu fjögurra ára. Sigríður afhenti einnig fulltrúum badmintondeildar, fimleikadeildar, knattspyrnudeildar, körfuknattleiksdeildar og sunddeildar viðurkenningu til næstu fjögurra ára, en þetta er önnur endurnýjun þessara deilda.
Aðalstjórn fékk einnig viðurkenningu þar sem allar deildir félagsins eru fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Starfsmerki voru veitt. Fimm bronsmerki vegna 5 ára stjórnarsetu fengu Ágúst Pedersen og Kjartan Steinarsson knattspyrnu, Sigurbjörg Róbertsdóttir sundi, Ingvar Gissurarson skot og Örn Garðarsson taekwondo. Tvö silfurmerki vegna 10 ára stjórnarsetu fengu Hjörleifur Stefánsson og Ólafur Birgir Bjarnason knattspyrnu. Eitt gullmerki vegna fimmtán ára stjórnarsetu fékk Guðjón Axelsson. Starfsbikar félagsins var veittur Sigmari Björnssyni.
Tvö silfurheiðursmerki voru veitt þeim Jón Ben Einarssyni formanni unglingaráðs körfunnar og Smára Helgasyni formanni unglingaráðs knattspyrnudeildar. Helgi Hólm var sæmdur gullheiðursmerki félagsins. Lagabreytingar lágu fyrir fundinum en laganefndir ÍSÍ og UMFÍ höfðu gert athugsemdir við nokkrar greinar í lögum félagsins og voru lagabreytingarnar samþykktar. Kaffiveitingar voru í umsjón foreldraráðs sunddeildar.
Sigríður Jónsdóttir formaður þróunar og fræðslusviðs ÍSÍ afhenti Bjarna Sigurðssyni formanni skotdeildar viðurkenningarskjal
Myndir EJS: Efst má sjá Helga Hólm ásamt Kára Gunnlaugssyni og Einari Haraldssyni. Svo var Sigmar Björnsson sæmdur starfsbikar félagsins.