Heimsmet í Go-kart akstri?

Ökumennirnir sem tóku þátt í æfingunni vou ásamt Ólafi, Ingólfur Ævarsson, Júlíus Ævarsson og Guðmundur Stefánsson. Þess má geta að drengirnir sem tóku þátt í þessu uppátæki með Ólafi eru aðeins 10, 13 og 15 ára gamlir. Að sögn Stefáns Guðmundssonar hjá Reis sló yngsti drengurinn, Ingólfur Ævarsson, sennilega heimsmet því eflaust hefur enginn svo ungur keyrt Go-kart bíl í fjórar klst. í einu.
Mikið af fólki var mætt til að fylgjast með ökumönnunum en smábílaklúbburinn var einnig með sýningu á bílum sínum og notaði fólk tækifærið og skoðaði „græjurnar“ þeirra. Dagskráin á Go-kart brautinni hófst kl. 09.00 og var til 15.00 en þetta var liður í fjölbreyttri dagskrá 17. júní.