Bygg
Bygg

Íþróttir

Heimaleikir hjá UMFN og UMFG í kvöld
Fimmtudagur 8. nóvember 2007 kl. 12:22

Heimaleikir hjá UMFN og UMFG í kvöld

Fjórir leikir fara fram í Iceland Express deild karla í kvöld og eiga Suðurnesjaliðin þrjú öll heimaleiki. Njarðvík og Grindavík leika heima í kvöld en Keflavík mætir KR í stórleik umferðarinnar annað kvöld. Allir leikir sjöttu umferðar hefjast kl. 19:15.

 

Njarðvíkingar taka á móti Stjörnunni í Ljónagryfjunni og munu heimamenn leika án bandarísks leikmanns þar sem þeir sögðu upp Charleston Long fyrir skemmstu. Félagið hefur komist að samkomulagi við Damon Bailey um að leika með liðinu og er hann væntanlegur til landsins á næstu dögum.

 

Grindvíkingar taka á móti Skallagrím í Röstinni en síðustu ár hafa rimmur þessara tveggja liða hin besta skemmtun og skemmst að minnast oddaleiks liðanna í úrslitakeppninni þar sem Grindavík marði magnaðan útisigur og komust áfram í undanúrslit gegn Njarðvíkingum.

 

Aðrir leikir kvöldsins eru:

 

Snæfell-Tindastóll

ÍR-Fjölnir

 

Umferðinni lýkur svo annað kvöld þegar Keflavík fær KR í heimsókn og Hamar halda Norður til Akureyrar og mæta heimamönnum í Þór.

 

Staðan í deildinni

 

VF-Mynd/ Úr safni - Þessir kappar hafa þá ófáa hildina háð. Páll Axel og Axel Kárason verða í eldlínunni með sínum liðum í kvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn