HEILSUHLAUP KRABBAMEINSFÉLAGSINS:
Góð þátttaka í hlaupinuGóð þátttaka var í heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins 3. júní sl. þrátt fyrir veðrabrigði og aðrar uppákomur á sama tíma. Arngrímur Guðmundsson varð fyrstur karla í 7 km. hlaupi og Una Steinsdóttir fyrst kvenna á sömu vegalengd. Þau Þór Ríkharðsson og Karen Sævarsdóttir tóku heim verðlaunin í 3 km. skemmtiskokki. Samtals voru þátttakendur 87, yngsti keppandi 3 ára og sá elsti 62 ára gamall.