Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Íþróttir

Heil umferð í 1. deild karla í kvöld
Föstudagur 18. maí 2007 kl. 12:32

Heil umferð í 1. deild karla í kvöld

Í kvöld verður leikin heil umferð í 1. deild karla í knattspyrnu. Njarðvík og Grindavík leika á heimavelli en Reynismenn leika úti. Njarðvíkingar taka á móti KA kl. 20:00 en leikurinn fer fram á Keflavíkurvelli þar sem nýji völlur Njarðvíkinga verður ekki klár fyrr en í þriðju til fjórðu umferð. Grindvíkingar taka á mót Leikni kl. 20:00 og Reynir mætir ÍBV á Hásteinsvelli kl. 19:00 í Vestmannaeyjum.

 

Gestur Gylfason, leikmaður UMFN

Gamli heimavöllur Gests Gylfasonar verður í eldlínunni í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti KA á Keflavíkurvelli. Gestur gerði garðinn fyrst frægan með Keflvíkingum en hann er nýstiginn upp úr meiðslum eftir liðþófaaðgerð.

,,Ég spilaði allan leikinn gegn Leikni og var þokkalega stífur eftir á en að öðru leyti er ég bara í fínu standi. Ég verð klár í slaginn í kvöld og það er erfiður leikur framundan, þetta verða allt erfiðir leikir í sumar,” sagði Gestur. ,,Það var gott að ná í stig á útivelli í fyrsta leik en við misstum niður 2-0 forystu og í lokin nýttum við ekki tækifærin til að klára leikinn. Við gleymdum okkur örskamma stund og þá sést það vel hveru miklu minna rými er fyrir mistök í 1. deild saman borið við 2. deild. Liðin eru sterkari og framherjarnir refsa okkur í vörninni fljótt ef maður er ekki að standa sig,” sagði Gestur. Félagarnir Bjarni Sæmundsson og Guðni Erlendsson verða enn fjarverandi í Njarðvíkurliðinu í kvöld sökum meiðsla. ,,Þetta er vissulega blóðtaka fyrir miðjuna okkar en það eru aðrir að fá séns og ef þeir standa sig gæti orðið þeim mun erfiðara fyrir Guðna og Bjarna að komast inn í liðið. Ég veit samt að Bjarni og Guðni koma hungraðir inn og það mun hjálpa okkur verulega að fá þá til baka,” sagði Gestur en bætti því við að lokum að hann vonaðist til þess að sjá sem flesta Keflvíkinga á leiknum í kvöld til þess að styðja við bakið á gamla liðsfélaganum.

 

Milan Stefán Jankovic, þjálfari UMFG

Ray Anthony Jónsson og Albert Arason hafa aplánað eins leiks bann og verða væntanlega í Grindavíkurhópnum í kvöld en Milan Jankovic þjálfari Grindvíkinga ætlar sér ekki að breyta út af sigurformúlinni frá Stjörnuleiknum.

,,Við vorum eina liðið í fyrstu umferð sem náði í útisigur og það var mjög mikilvægt fyrir okkur að byrja vel. Ég sé ekki ástæðu til þess að breyta hópnum frá Stjörnuleiknum þó vissulega sé gott að fá Ray og Albert til baka. Leikurinn í kvöld er fyrsti heimaleikurinn okkar í sumar svo það er nokkur spenna í hópnum og við vonum bara að sem flestir sjái sér fært um að mæta og styðja við bakið á okkur. Við eigum frábæra stuðningsmenn og þeir fjölmenntu í Garðabæinn og sönnuðu sig rétt eins og við gegn Stjörnunni, við vorum þeim afar þakklátir fyrir stuðninginn,” sagði Milan sem vonast til þess að Grindvíkingar láti stöðuspánna rætast að sumri loknu en þeim gulu var spáð 1. sæti í deildinni.

 

Hafsteinn Rúnar Helgason, fyrirliði Reynis

Fyrirliðinn er hvergi banginn og segir leik kvöldsins og reyndar alla leiki sumarsins skera úr um hvort Sandgerðingar eigi erindi í 1. deildina.

,,Þetta verður hörkuleikur í kvöld og það er erfitt tímabil framundan en við förum langt á liðsbaráttunni og ég hef fulla trú á því að við eigum eftir að standa okkur vel í kvöld og í allt sumar. Þegar við lékum í 2. deild í fyrra var okkur spáð í neðri hlutann en við fórum samt upp. Okkar markmið í sumar er að halda okkar sæti í deildinni,” sagði Hafsteinn en hvernig líst fyrirliðanum á nýju bandarísku leikmennina sem komnir eru til Reynis?

,,Okkur bráðvantaði vinstri fótarmann og einn kananna er með öflugan vinstri fót. Koma þeirra þéttir liðið og baráttan um sæti í liðinu heldur öllum mannskapnum á tánum. Hugarfar okkar fyrir leikinn í kvöld er að fara til Eyja og ná stigi. Margir hafa sagt að sigur okkar gegn Fjölni í fyrsta leik hafi verið heppni en staðreyndin er sú að við nýttum vel okkar tækifæri og ég tel einfaldlega að Fjölnismenn hafi vanmetið okkur. Við getum unnið öll lið í þessari deild ef við spilum með réttu hugarfari,” sagði Hafsteinn.

 

Njarðvík-KA kl. 20:00

Keflavíkurvöllur

 

Grindavík-Leiknir R. kl. 20:00

Grindavíkurvöllur

 

ÍBV-Reynir kl. 19:00

Hásteinsvöllur

 

[email protected]

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn