Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

  • Heil umferð hjá stelpunum í kvöld
  • Heil umferð hjá stelpunum í kvöld
    Pálína og félagar heimsækja Breiðablik heim í kvöld
Miðvikudagur 4. mars 2015 kl. 17:04

Heil umferð hjá stelpunum í kvöld

Heil umferð verður leikin í Dominos deild kvenna í kvöld þar sem að bæði Suðurnesjaliðin eiga útileiki. Keflvíkingar heimsækja Hauka í Hafnarfjörðinn en Haukar berjast fyrir 4. sætinu í deildinni sem gefur sæti í úrslitakeppninni á meðan Keflvíkurstúlkur heyja mikla baráttu við Snæfell um deildarmeistaratitilinn.

Breiðablik tekur svo á móti bikarmeisturum Grindavíkur í Smáranum þar sem að Breiðablik berst fyrir sæti sínu í deildinni en Grindvíkingar um sæti á meðal fjögurra efstu liða. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Báðir leikir hefjast kl. 19:15 og er hægt að fylgjast með gangi leikjanna í gegnum leikvarp KKÍ á heimasíðu þeirra, www.kki.is.