Heiðarskóli vann Skólahreysti í sjötta sinn
Heiðarskóli í Reykjanesbæ sigraði í Skólahreysti í sjötta sinn eftir spennandi úrslitakeppni í dag. Heiðarskóli fékk 64 stig, hálfu meira en Laugarlækjaskóli.
Keppin var æsispennandi og Heiðarskóli var með bestan árangur í upphífingum og dýfum. Heiðarskóli var með 4,5 stigum meira en Laugalækjarskóli fyrir síðustu keppnina sem var hraðabrautin. Laugalækjarskóli vann hana en Heiðarskóli endaði í 3. sæti í henni og það tryggði honum sigur í keppninni.
Lið Heiðarskóla er skipað þeim Emmu Jónsdóttur (armbeygjur og hreystigreip), Heiðari Geir Hallssyni (upphífingar og dýfur), Jönu Falsdóttur (hraðaþraut) og Kristóferi Mána Önundarsyni (hraðaþraut).
Varamenn eru Katrín Hólm Gísladóttir, Melkorka Sól Jónsdóttir og Arnþór Ingi Arnarsson
Holtaskóli og Akurskóli voru meðal 12 skóla í úrslitum en komust ekki í efstu þrjú sætin.