Heiðarskóli vann Skólahreysti 2014
Holtaskóli varð í 2. sæti. Frábær árangur skóla úr Reykjanesbæ í Skólahreysti heldur áfram!
Heiðarskóli úr Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í Skólahreysti árið 2014 eftir æsispennandi úrslitakeppni í Laugardalshöll í gærkvöld. Stemningin var engu lík í Höllinni en keppnin var einnig sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Tólf bestu skólar mættust í úrslitum og hefur keppnin sjaldan verið eins jöfn og hörð og ljóst er að mikil áhersla hefur verið lögð á æfingar í skólunum.
Heiðarskóli sigraði en Holtaskóli úr Reykjanesbæ tryggði sér annað sætið með góðum endaspretti og Seljaskóli varð í þriðja sæti í sinni fyrstu úrslitakeppni. Heiðarskóli endurheimti titilinn sem skólinn vann árið 2010 en Holtaskóli vann keppnina síðustu þrjú ár.
Aðrir sem tóku þátt í úrslitum voru Fellaskóli í Fellabæ, Grundaskóli, Grunnskólinn á Þingeyri, Hvolsskóli, Lágafellsskóli, Síðuskóli, Valhúsaskóli, Vallaskóli og Varmahlíðarskóli.
Sigurliðið
Heiðarskóli hampaði titilinum í kvöld með 59 stigum. Liðið skipa þau
Elma Rósný Arnardóttir sem tók armbeygjur og hreystigreip
Andri Már Ingvarsson sem tók upphífingar og dýfur
Katla Rún Garðarsdóttir tók hraðaþraut
Arnór Elí Guðjónsson tók hraðaþraut
Vegleg verðlaun
Landsbankinn veitti nemendafélögum þriggja efstu skólanna vegleg peningaverðlaun. Keppendur sigurliðsins fengu einnig vegleg verðlaun.
Lið Holtaskóla varð í 2. sæti en það vann þrjú árin í röð á undan.