Íþróttir

Hávaxna Helga til Grindavíkur
Miðvikudagur 26. ágúst 2015 kl. 18:55

Hávaxna Helga til Grindavíkur

Kvennaliði Grindavíkur í körfunni hefur borist mikill liðsstyrkur þegar miðherjinn Helga Einarsdóttir skrifaði undir samning við félagið í vikunni. Helga sem er uppalinn á Sauðárkróki hefur undanfarin átta leikið með KR-ingum og var fyrirliði liðsins síðustu þrjú tímabil. Helga sem er 186 cm á hæð er sannkölluð frákastavél og mun sannarlega styrkja liðið mikið í baráttunni í teignum í vetur.

Lið Grindavíkur hefur tekið þó nokkrum breytingum frá síðasta vetri. Pálína Gunnlaugsdóttir er horfin á braut og þá er óvíst hvenær þær María Ben Erlingsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir verða leikhæfar á ný. Aftur á móti hefur Íris Sverrisdóttir snúið í heimahaga og þá hefur Keflavíkurmærin Ingunn Embla Kristínardóttir samið við liðið.

Karfan.is ræddi við Helgu um nýja áfangastaðinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þetta leggst mjög vel í mig. Hópurinn samanstendur af ungum og efnilegum leikmönnum og síðan nokkrum reynsluboltum og hlakka ég til að bætast í þann hóp. Vissulega mun taka tíma að slípa liðið saman en ég hef fulla trú á að það takist með mikilli vinnu sem ég veit að leikmenn eru tilbúnir að leggja á sig. Grindavík er ekki feimið við að segja að þeir ætli að vera í baráttunni um alla titla og verður þetta því spennandi vetur.“

Mynd: Grindavík.net