Haukur bestur og Thelma Dís efnilegust
Tímabilið gert upp í körfunni
Njarðvíkingurinn Haukur Helgi Pálsson var kjörinn besti leikmaður Domino's deildar karla í körfubolta þegar tímabilið var gert upp í gær. Sigmundur Már Herbertsson úr Njarðvík var kjörinn besti dómarinn en einnig var valið í úrvalslið karla og kvenna í efstu tveimur deildunum. Thelma Dís Ágústsdóttir úr Keflavík var valin besti ungi leikmaður deildarinnar í kvennaboltanum. Í fyrstu deild karla var Njarðvíkingurinn Ragnar Helgi Friðriksson valinn í fimm manna í úrvalslið, en hann leikur með Þór á Akureyri.
Domino´s deild kvenna
Úrvalslið Domino´s deild kvenna 2015-16
Gunnhildur Gunnarsdóttir Snæfell
Guðbjörg Sverrisdóttir Valur
Helena Sverrisdóttir Haukar
Sigrún Ámundadóttir Grindavík
Bryndís Guðmundsdóttir Snæfell
Besti ungi leikmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Thelma Dís Ágústsdóttir Keflavík
Domino´s deild karla
Úrvalslið Domino´s deild karla 2015-16
Pavel Ermolinskij KR
Kári Jónsson Haukar
Haukur Helgi Pálsson Njarðvík
Helgi Már Magnússon KR
Ragnar Ágúst Nathanaelsson Þór Þ.
Besti leikmaður Domino´s deild karla 2015-16
Haukur Helgi Pálsson Njarðvík