HSS
HSS

Íþróttir

Föstudagur 22. febrúar 2002 kl. 22:10

Háspenna-lífshætta í ljónagryfjunni

Það var gríðarleg spenna í kvöld þegar Grindvíkingar sigruðu Njarðvíkinga 88:92 eftir framlengdan leik í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Tyson Petterson var bestur í liði gestanna með 30 stig en Teitur skoraði 25 stig fyrir heimamenn.Leikurinn var jafn til að byrja með en í 2. leikhluta fóru Grindvíkingar að hitta betur úr skotum sínum og náðu ágætu forskoti og leiddu í leikhléi 34:46. Í seinni hálfleik var annað uppá teningnum því Njarðvíkingar tóku að minnka forystuna jafnt og þétt. Í enda 3. leikhluta kom hins vegar bakslag í leik þeirra grænu og þeir fóru að brjóta óþarflega mikið og Grindvíkingar náðu aftur forskoti. Þegar 4. leikhluti byrjaði leiddu gestirnir 60:68 og þeir byrjuðu á þriggjastiga körfu.
Heimamenn höfðu þó ekki sagt sitt síðasta og minnkuðu muninn og í stöðunni 75:80 tók Tyson Petterson örlagaríka ákvörðun og ætlaði að troða boltanum í körfuna en klúðraði alveg opnu færi. Friðrik Stefánsson jafnaði leikinn úr vítum þegar stutt var eftir en það er ótrúlegt að Njarðvíkingar skuli ekki spila meira á hann því hann er gríðalega öflugur inní teignum. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 83:83 en í framlengingunni var ekki síður mikil spenna. Það voru þó Grindvíkingar sem voru betri og unnu verðskuldað 88:92 en á lokakaflanum klúðraði Teitur boltanum og því fór sem fór.
Tyson Petterson var bestur í liði gestanna með 30 stig en Teitur Örlygsson var bestur heimamanna með 25 stig.
Bílakjarninn
Bílakjarninn