Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Haraldur kominn inn á
Laugardagur 4. júní 2005 kl. 18:38

Haraldur kominn inn á

Haraldur Guðmundsson, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur í knattspyrnu, var rétt í þessu að koma inn á í landsleik Íslands og Ungverjalands í Laugardal. Pétur Marteinsson meiddist á 25. mínútu og kom Haraldur inn á í hans stað. Staðan í leiknum er 1-0 Íslendingum í vil en markið gerði Eiður Smári Guðjohnsen. Þetta er fyrsti leikur Haralds fyrir A-landslið Íslands í knattspyrnu. Stefán Gíslason, einnig fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, var í byrjunarliðinu í dag en þetta er hans fimmti A-landsleikur.

VF-mynd/ Haraldur í leik með AAlesund í Noregi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024