Haraldur Guðmundsson til reynslu hjá rússnesku úrvalsdeildarliði
Haraldur Guðmundsson, leikmaður knattspyrnuliðs Keflavíkur, hélt utan til Hollands í gær til að æfa með rússneska úrvalsdeildarliðinu Shinnik Yaroslavl og mun vera til reynslu hjá liðinu fram á föstudag.
Þetta kom þannig til að Shinnik var statt í Hollandi á æfingaferðalagi og vantaði varnarmann. Þeir settu sig í samband við hollenskan umboðsmann sem hafði aftur samband við Arnór Guðjohnsen sem benti á Harald. Þetta var fyrir u.þ.b. viku en ýmsir hlutir urðu til þess að brottförin tafðist þar til í gær og því hefur hann takmarkaðan tíma til að sýna hvað í honum býr.
Haraldur sagði í samtali við Víkurfréttir að í gær hefði hann leikið með liðinu í æfingaleik gegn belgíska liðinu Genk, sem Shinnik vann 2-1. „Þetta er alveg hörkulið og var ekki langt frá því að komast í Meistaradeildina á síðasta ári. Ég fer á fund með þeim í kvöld þar sem verður farið yfir málin, en mér skildist á þjálfaranum að þeir væru ánægðir með það sem þeir hafa séð fá mér.“