Haraldur blæs á spádóma - Pepsi deildin hefst í dag
Víkurfréttir heyrðu hljóðið í Haraldi Guðmundssyni fyrirliða Keflavíkurliðsins í knattspyrnu og spurðu hann um vonir og væntingar leikmanna til sumarsins. Liðið hefur verið um miðja deild undanfarin tvö ár og er spáð um svipaðar slóðir af ýmsum fjölmiðlum. Keflvíkingar hefja leik á Íslandsmótinu þegar þeir taka á móti Stjörnumönnum á Nettóvellinum á morgun klukkan 19:15. Haraldur segir þó spádóma ekki breyta miklu fyrir liðið. „Hvar okkur er spáð skiptir engu máli, en miðað við gengi okkar í fyrra og í vetur er þetta kannski spá sem hægt er að miða við. Markmið okkar í deildinni er að gera betur enn í fyrra. Ef við miðum við það vorum við í toppbaráttu þangað til um mitt mót þá misstum við svoldið móðinn og komumst aldrei aftur inní toppbaráttuna, okkar markmið í ár er að vera í toppbaráttu eins lengi og hægt er. Þannig er mál með vexti og við förum í alla leiki til að vinna þá,“ segir Haraldur Guðmundsson fyrirliði Keflavíkur.
Haraldur segir stemninguna í hópnum vera mjög góða og menn hlakki til að byrja mótið. Undirbúningstímabilið hafi gengið ágætlega, fyrst og fremst hafi liðið æft mjög vel og spilað mikið af leikjum. Keflvíkingar sigruðu Fótbolta.net mótið snemma í vetur en Haraldur segir deildarbikarinn ekki alveg hafa gengið eins og á var kosið, liðið muni hins vegar mæta vel undirbúið til leiks 2.maí gegn Stjörnunni. Nýjir menn hafi fallið vel inní leik liðsins og einnig þeir ungu leikmenn sem fyrir voru hjá félaginu.