Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Handagangur í öskjunni á Hertzmóti Keflavíkur
Fimmtudagur 28. október 2004 kl. 13:29

Handagangur í öskjunni á Hertzmóti Keflavíkur

Reykjaneshöllin iðaði af lífi á laugardaginn þegar Hertz-mót Keflavíkur í knattspyrnu fór fram hjá 6. flokki karla. Um 200 keppendur og annað eins af foreldrum og áhorfendum mættu og skemmtu sér hið besta. Mótið tókst í alla staði mjög vel og voru keppendur og aðrir er lögðu leið sína í Höllina mjög ánægðir. Þetta var annað árið í röð sem þetta mót er haldið og verður hér eftir að árlegum viðburði.
Það var hart, en prúðmannlega, tekist á af liðunum sex sem öttu kappi á mótinu en þau voru; Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Fjölnir, ÍR og Breiðablik.  Í mótinu voru leiknir 60 leikir og í þeim skoruð 252 mörk, sem gerir að meðaltali 4,2 mörk í leik.

Leikið var í fjórum deildum og voru sigurvegarar deildanna sem hér segir:
Argentínska deildin: Keflavík
Brasilíska deildin: Fjölnir
Chile deildin: Breiðablik
Danska deildin: Fjölnir

Sigurliðin fengu glæsilega eignarbikara og allir þátttakendur fengu verðlaunapening. Í lokin snæddu piltarnir svo gómsætar pizzur frá Langbest og héldu svo saddir og glaðir heim á leið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024