Halli og Bói með knattspyrnuskóla í Reykjaneshöllinni
Keflvíkingurinn Haraldur Freyr Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson nýjasti leikmaður FH munu standa fyrir knattspyrnuskóla dagana 19. - 23. desember nk. fyrir krakka á aldrinum 7-14 ára.
Yfirþjálfari í skólanum er Freyr Sverrisson en skólinn verður haldinn í Reykjaneshöllinni. „Þetta er tilvalið tækifæri fyrir krakkana að koma þegar þau eru komnin í jólafrí frá skólanum,“ sagði Haraldur í stuttu spjalli við VF.
Nánar er hægt að kynna sér skólann með því að smella á tengilinn á skjal um skólann hér að neðan.