Hallgrímur til Lokeren á reynslu
 Hallgrímur Jónasson er á leiðinni til belgíska félagsins Lokeren til reynslu. Hallgrímur heldur út strax eftir síðasta leikinn í Landsbankadeildinni og verður hjá Lokeren í tvær vikur.
Hallgrímur Jónasson er á leiðinni til belgíska félagsins Lokeren til reynslu. Hallgrímur heldur út strax eftir síðasta leikinn í Landsbankadeildinni og verður hjá Lokeren í tvær vikur.
Hallgrímur hefur verið að leika hinar ýmsu stöður með Keflavíkurliðinu í sumar og hann hefur leikið tvo síðustu leiki U-21 árs landsliðs Íslands sem miðvörður. Í gegnum árin hefur Lokeren verið sannkallað Íslendingalið og síðast lék Rúnar Kristinsson með liðinu.
VF-Mynd/ [email protected] – Hallgrímur í leiknum gegn Fylki um síðustu helgi.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				