Hallgrímur inn í U 21 hópinn
Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Jónasson sem leikur með Keflavík í Landsbankadeild karla hefur verið kallaður inn í U 21 árs landsliðshópinn af þjálfaranum Luka Kostic.
Hallgrímur kemur inn í hópinn í stað Eggerts Gunnþórs Jónssonar sem meiddist í leik með Hearts gegn
Fyrir í hópnum er markvörðurinn og Grindvíkingurinn Óskar Pétursson en Óskar og Hallgrímur eru einu Suðurnesjamennirnir í hópnum.
Íslenska U 21 árs liðið mætir Kýpur á Grindavíkurvelli kl. 16:00 á morgun en þetta er jafnframt fyrsti leikur liðsins í undankeppni EM 2009.
VF-mynd/ Jón Örvar Arason