Hallgrímur í U-21 árs hópnum
Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Jónasson hefur verið valinn í U-21 árs landsliðshóp Íslands sem leikur tvo leiki í undankeppni EM á næstu vikum.
Lúkas Kostic, þjálfari liðsins, kallaði Hallgrím inn í hópinn rétt fyrir leik gegn Kýpur á dögunum vegna meiðsla annarra leikmanna. Nú er Hallgrímur valinn í hópinn sem leikur gegn Slóvökum á útivelli föstudaginn 7. september og á heimavelli gegn Belgum þriðjudaginn 11. september.
www.keflavik.is