Hallgrímur í eldlínunni uppi á Skaga í dag
U 21 árs landslið Íslands í knattspyrnu tekur á móti Belgum í undankeppni EM 2009. Leikurinn fer fram uppi á Akranesi og hefst kl. 17:30.
Keflvíkingurinn Hallgrímur Jónasson verður í hópnum í dag en hann var í byrjunarliðinu ytra gegn Slóvökum þegar liðin skildu jöfn 2-2.
VF-mynd/ Úr safni - Hallgrímur í leik með Keflvíkingum.