Halldór Örn í grænt næstu tvö ár
- Halldór Örn Halldórsson mun leika með Njarðvík næstu tvö tímabil
Halldór Örn Halldórsson hefur samið við körfuknattleiksdeild UMFN þess efnis að leika með liðinu næstu tvö árin. Halldór Örn er 200 cm framherji/miðherji sem að kemur til með að efla okkar lið í baráttunni í teignum. Greint er frá þessu á heimasíðu UMFN í dag.
Halldór Örn, sem lék með UMFN í yngri flokkunum á árunum 1995-1997, kemur til liðs við félagið frá Þór á Akureyri þar sem hann lék á nýliðnu tímabili. Þar skilaði hann 14,2 stigum á leik og tók 7,2 fráköst (heildarframlag á leik upp á 15,0). Halldór Örn lék einnig lengi með Keflavík, og tvö tímabil með Breiðablik, en þá lék hann einmitt undir stjórn Einars Árna Jóhannssonar þjálfara UMFN (tímabilið 2007-2009).
Heimasíða UMFN tók Halldór tali af þessu tilefni.
Fyrst af öllu, velkominn aftur í Njarðvík Halldór Örn – hvernig lýst þér svo á að vera kominn í grænt aftur eftir langt hlé?
Takk fyrir það, ég er bara gríðarlega spenntur fyrir því að takast á við þetta verkefni. Virkilega spennandi lið og hópur sem ég hlakka mikið til að koma inn í. Mér hefur alltaf fundist ég líta nokkuð vel út í grænu.
Menn hafa rifjað það upp að þú áttir tvö tímabil í yngri flokkum UMFN. Hvaða strákar voru þetta sem voru að spila með þér og hver þjálfaði þig á þeim tíma?
Já, það er rétt. Og fyrir utan það fór ég á mínar fyrstu æfingar í Ljónagryfjunni 6 ára svo það má segja að ég sé kominn aftur til upphafsins. En þetta Njarðvíkurlið sem ég spilaði með var allt fullt af snillingum. Þarna voru Óli Aron sem ég spilaði með á Akureyri í vetur, Gummi Jóns, Egill Jónasar, Óskar Hauks, Aron Smára, Rúnar Óli og Fannar Berg vinur minn sem hefur verið duglegur undanfarin ár að minna mig á tímana í Njarðvík og gert sitt til að fá mig til baka, og fleiri snillingar. Og á svona hóp þarf alvöru þjálfara og það dugði ekkert minna en Júlli Valgeirs á þessa vitleysinga og hann gerði bara mjög vel.
Nú var Njarðvíkurliðið í sjötta sæti á nýliðnu tímabili, en duttu út í 8 liða í úrslitakeppninni. Hvernig sérðu næsta vetur fyrir þér? Hefur liðið burði til að gera betur á komandi vetri?
Þetta lið hefur alla burði til að gera betur næsta vetur og markmiðin, eftir því sem Einar hefur sagt mér, eru skýr og það á að gera betur. Það er svo magnað að þrátt fyrir að liðið hafi spilað frábærlega á köflum í vetur og dottið út eftir tvö naum töp á einum erfiðasta útivelli landsins þá eru flestir þessara stráka á þeim aldri að þeir geta bara orðið betri. Það er alveg gríðarlega spennandi tækifæri fyrir mig að fá að taka þátt í því.