Íþróttir

Halldór Karlsson aðstoðar Einar í Njarðvík
Friðrik Ragnarsson formaður UMFN og Halldór Karlsson nýráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla
Þriðjudagur 29. maí 2018 kl. 13:33

Halldór Karlsson aðstoðar Einar í Njarðvík

Halldór Karlsson verður aðstoðarþjálfari Einars Árna Jóhannssonar með karlalið Njarðvíkur í Domino´s-deildinni í körfu á komandi leiktíð. Gengið var frá ráðningu Halldórs á dögunum. „Óhætt er því að segja að „Skröltormurinn“ sé mættur aftur í úrvalsdeild en einkennismerki Halldórs eftir gott hark á parketinu var þeytivinduhnefinn sem minnti óneitanlega á hringlu skröltormsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Halldór hefur á síðustu árum þjálfað yngri flokka í Njarðvík en hann var annar tveggja fyrirliða í síðasta Íslandsmeistaraliði Njarðvíkur árið 2006 en þess má til gamans geta að þar var Einar Árni einnig þjálfari en hann og Halldór eru æskuvinir af Brekkustígnum. Þá var Jeb Ivey einnig liðsmaður í meistaraliðinu 2006 svo þessir ágætu herramenn eru sameinaðir á ný við titlaveiðar í Ljónagryfjunni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024