Miðvikudagur 9. febrúar 2005 kl. 14:43
Háleit markmið Þróttara

Íris Ósk Hafsteinsdóttir, sundkona úr Þrótti Vogum, er búin að ná lágmörkum á AMÍ, Aldursmeistaramót Íslands, en miðað er við 20. besta tímann á síðasta ári. Hún er búin að ná lágmörkunum í 100m og 200m bringusundi. Lágmarkið í 100m bringusundi er 1,39:10 mín en Íris Ósk á 1,35:93 mín og lágmarkið í 200m bringusundi er 3,33:10 mín og á Íris Ósk tímann 3,29:10 mín. Stefnan hjá sunddeild Þróttar er að koma fleiri sundmönnum inn á AMÍ í ár og stefna þau ótrauð að settu marki.
Einnig er búið að stofna Garpadeild í sundi. Æfingarnar eru kl. 06:00-07:00 á morgnana. Í Garpadeildinni eru 20 manns skráðir. Æfingarnar hófust 1.febrúar og ætlar þessi hópur að æfa í fjóra mánuði (feb, mars,
apríl og maí).