Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hafsteinn Smári og Ásdís Rósa Hnefaleikafólk ársins 2009
Miðvikudagur 6. janúar 2010 kl. 10:15

Hafsteinn Smári og Ásdís Rósa Hnefaleikafólk ársins 2009


Þau Hafsteinn Smári Óskarsson og Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, bæði frá Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR), voru valin Hnefaleikamaður og Hnefaleikakona ársins 2009 í hófi ÍSÍ á Grand Hótel í Reykjavík þann 5. janúar síðastliðinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


HNEFALEIKAMAÐUR ÁRINS 2009 - Hafsteinn Smári Óskarsson

Hafsteinn Smári hefur verið ósigrandi í hringnum síðan haustið 2008. Frá því um áramótin síðustu hefur hann mætt og unnið sigur á öllum íslenskum keppinautum sínum í fjórum þyngdarflokkum, sem er óheyrt.

Á Íslandsmótinu sigraði hann Elías Shamsudin frá Hnefaleikafélaginu ÆSIR (HFÆ) og varð Íslandsmeistari í léttvigt (60 kg). Hann sigraði einnig besta léttveltivigtarboxara landsins (64 kg), Adam Frey Daðason frá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar (HFH), Gunnar Georg Gray (HFÆ), Íslandsmeistarann í veltivigt (69 kg) tvívegis og nú síðast besta millivigtarboxarann (75 kg), Kristján Orra Arnarsson (HFH) þrátt fyrir að á þeim væri um 10 kg þyngdarmunur. HFH tók ekki þátt á Íslandsmótinu þetta árið og er það einungis af þeim sökum sem þeir Adam og Kristján eru ekki Íslandsmeistarar.

Hafsteinn vann einnig yfirburðasigur á Vilhjálmi Gunnar Péturssyni (HFÆ) í 69 kg flokki, þrátt fyrir nokkurn þyngdarmun og 13 ára aldursmun (Hafsteinn er 15 ára). Það er ólíklegt að það verði nokkurn tímann leikið eftir honum.

Hafsteinn er íþróttamaður fram í fingurgóma og hefur aldrei hopað undan nokkurri áskorun. Af þessum sökum er hann útnefndur Hnefaleikamaður ársins 2009.


HNEFALEIKAKONA ÁRSINS 2009 - Ásdís Rósa Gunnarsdóttir

Það eru fáar íslenskar hnefaleikakonur sem hafa stigið eins oft í hringinn á einu ári og Ásdís Rósa gerði á árinu. Til þess hefur hún oftast nær þurft að berjast utan síns eiginlega þyngdarflokks, fjaðurvigtar (57 kg).

Í janúar mætti hún í öðrum bardaga sínum á ævinni þriðju bestu léttvigtarkonu (60 kg) Danmerkur, Maríu Jacobsen. Ásdís fór allar loturnar og stóð sig bara nokkuð bærilega miðað við töluverðan reynslu- og þyngdarmun. Hún nýtti reynsluna og stóð sig fantavel þegar hún mætti loksins einhverjum í sínum eigin þyngdarflokki, Lindu Dögg Guðmundsdóttur (HFÆ) og hafði betur á stigum á móti í mars. Þær mættust svo aftur á Íslandsmótinu mánuði síðar og í þetta sinn vann Ásdís fullnaðarsigur þegar viðureignin var stöðvuð í annarri lotu.

Ekki gekk að finna Ásdísi andstæðing á Ljósanótt, þannig að hún bætti það upp með því að keppa fjórum sinnum á sex vikum í október og nóvember! Hún tók þríleik við veltivigtarkonuna (66 kg) Berglindi Frances Aclipen (HFÆ) og voru allir leikirnir jafnir og skemmtilegir. Ásdís sigraði þann fyrsta, en Berglind þann annan og þriðja líka, þótt sá síðasti hefði líkast til getað farið hvernig sem er. Á milli stríðanna við Berglindi fór hún til Danmerkur og mætti léttvigtarkonunni (60 kg) Nínu Jørgensen. Sú hefur átta ára reynslu af hnefaleikum og vann sigur á stigum.

Ásdísi Rósu er kjörin Hnefaleikakona ársins 2009 á þeim forsendum að hún er þrátt fyrir allt ósigruð í sínum þyngdarflokk, varð Íslandsmeistari á árinu, hefur stigið í hringinn oftar en flestir keppendur af báðum kynjum og er frábær íþróttamaður sem hefur sýnt mikinn metnað og framfarir á árinu öllu frá upphafi til enda.

Ásdís stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í London 2012 og ætlar næstu tvo mánuðina út til Bandaríkjanna í æfingabúðir hjá Freddie Roach og félögum í Wild Card Gym.

Hnefaleikafélag Reykjaness óskar Hafsteini og Ásdísi innilega til hamingju með titlana og hlakkar til stærri og enn betri hluta á nýju ári!