Hafsteinn semur við Keflavík

Í fyrra var Hafsteinn einn af burðarásum Reynismanna í 1. deildinni en hann hefur spilað með þeim sl. þrjú ár. Hafsteinn hefur einnig spilað með Grindavík, Njarðvík og Víði. Hann hefur spilað um 80 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 14 mörk. Hafsteinn er fljótur og leikinn leikmaður, mikill baráttumaður. Hann getur spilað sem framherji og kantmaður.