Hægt að panta flug til Lilleström?
Keflvíkingar standa með pálmann i höndunum eftir stórsigur á Norður-írska liðinu Dungannon Swifts, í fyrstu umferð InterTOTO keppninnar í knattspyrnu, 4-1. Keflvíkingar voru betri aðilinn frá upphafi og spiluðu á tíðum skemmtilegan bolta, en meira fór fyrir baráttu, og stundum hreinræktuðum tuddaskap, í spili gestanna.
Sérstaka athygli vakti að einungis 400 manns mættu á leikinn og er ekki ofsögum sagt að það sé sorglegt að vita til þess að Keflvíkingar sjái sér ekki fært að mæta á völlinn í ágætis veðri til að sjá sitt lið leika Evrópuleik. Vonandi verður breyting á því í næstu umferð (ef allt fer vel í seinni leiknum) þar sem Keflavík mætir Lilleström.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn vel og komust í nokkur ágæt færi, en færeyski töframaðurinn Símun Samelsen opnaði markareikning sinn í Evrópu með góðu skoti úr teig á 16. mínútu. Simun slapp einn og óvaldaður inn í teiginn hægra meginn og skaut föstu skoti upp í fjærhornið, óverjandi fyrir Wells í marki Dungannon.
Dungannon áttu lengst af í vök að verjast, enda er liðið í lítilli leikæfingu þar sem þeir hafa ekki leikið keppnisleik frá því í apríl. Þeir sóttu þó í sig veðrið eftir því sem leið á hálfleikinn, enda börðust þeir grinnilega og gáfu Keflvíkingum lítil grið á boltanum.
Þeirra besta færi kom á 27. mín þegar Ómar Jóhannsson varði lúmskt skot úti við stöngina en missti blautan knöttinn frá sér og rúllaði hann inni í markteig, en enginn Íri var þar staddur til að klára færið.
Keflavík hefði getað farið inn í hálfleik með 2 eða 3 mörk, en fóru oft illa að ráði sínu framan við mark andstæðinganna, sérstaklega Hólmar Örn Rúnarsson, sem skaut framhjá í dauðafæri á 41. mínútu eftir góðan undirbúning.
Eftir barning i upphafi síðari hálfleiks bættu heimamenn við marki og var þar á ferðinni fyrirliðinn Guðmundur Steinarsson sem fékk fyrirgjöf inn á teiginn á 68. mínútu og renndi boltanum framhjá Wells í markinu.
Ekki var langt um liðið frá markinu þegar Guðmundur bætti við öðru, nú úr vítaspyrnu, eftir að brotið var á Baldri Sigurðssyni.
Vítið kom á 73. mínútu, en ekki löngu síðar var einum leikmanni Dungannon, Rodney Macaree, vikið af velli fyrir brot á Hólmari Erni, en sá þokkapiltur er einmitt sonur írska þjálfarans og móðir hans er gjaldkeri félagsins. Rodney þessi hefur áður fengið að sjá spjöld en samkvæmt spjalli Víkurfrétta við fjölmiðla frá Norður-Írlandi þykir hann grófur leikmaður.
Eftir það voru úrslitin ráðin, en Magnús Sverrir Þorsteinsson rak síðasta naglann í kistu Dungannon á 80. mín með góðu skoti úr teig eftir skemmtilegt spil.
Dunganon klóruðu þó í bakkann á 87. mín þegar fyrirliði þeirra, Jontahan Montgomery, skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu af löngu færi. Beint up í vinkiliinn fjær, óverjandi fyrir Ómar í markinu.
Þessi sigur mun eflaust fleyta Keflvíkingum í næstu umferð, en Guðmundur Steinarsson, fyrirliði, og Kristján Guðmundsson, þjálfari, voru ósáttir við að fá á sig markið sem gæti reynst dýrkeypt ef allt fer á versta veg í seinni leiknum. Sjá má viðtöl við þá báða á Vef Tíví Víkurfrétta ofar á síðunni og með því að smella hér má sjá myndasafn frá leiknum.
VF-myndir/Hilmar Bragi og Þorgils