Bygg
Bygg

Íþróttir

Mánudagur 21. júlí 2003 kl. 10:10

Hægir Ægismenn voru engin fyrirstaða fyrir sprækt Reynislið

Hægir Ægismenn voru engin fyrirstaða fyrir sprækt Reynislið þegar þeir síðarnefndu unnu sannfærandi 6-0 sigur í leik sl. föstudag þar sem aldrei var spurningin hvort liðið væri betra, heldur aðeins hvað sigurinn yrði stór. Ari Gylfason skoraði fyrsta mark leiksins með góðu langskoti á 12. mínútu. Tveimur mínútum síðar skoraði Gísli Þórarinsson annað mark Reynis eftir góðan samleik við Smára Guðmundsson. Ari jók muninn í þrjú mörk stuttu fyrir leikhlé með glæsilegu marki eftir frábæra sendingu frá Hafsteini
Helgasyni.

Það hægðist töluvert á Reynismönnum í seinni hálfleik og gestirnir komust meira inn í leikinn. Heimamenn voru þó alltaf sterkari aðilinn og skoruðu þrjú mörk á síðustu 10 mínútum leiksins. Fyrst breytti Smári Guðmundsson stöðunni í 4-0 með glæsimarki eftir frábæra langsendingu frá Magnúsi H.
Magnússyni. Ari Gylfason skoraði fimmta mark Reynis úr víti og fullkomnaði þar með þrennu sína. Hafsteinn Þór Friðriksson skoraði síðan síðasta mark leiksins af stuttu færi eftir að Björn I. Björnsson hafði skotið í stöng.

Með þessum sigri eru Reynismenn í þægilegri stöðu í toppslag B-riðils 3.deildar og aðeins stórslys getur komið í veg fyrir að þeir fari í úrslitin. Ægismenn eru hins vegar sem fyrr án sigurs í sumar og sitja einir á botni riðilsins.

Á laugardaginn léku Víðismenn við KS á Siglufjarðavelli og gerðu 2-2 jafntefli. Víðir er í 7. sæti 2. deildar með 14 stig.
Bílakjarninn
Bílakjarninn