Gunni Gunn hlaðinn verðlaunum í lok tímabils

Hann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í götubílaflokki þriðja árið í röð og var í öðru sæti í opnum flokki, sem þykir ótrúlegt enda keppti hann þar við sérútbúna bíla. Þá var hann í öðru sæti í heimsbikarkeppninni.
Gunnar hefur einnig látið til sín taka á alþjóðlegum vettvangi þar sem hann vakti m.a. mikla athygli á móti í Svíþjóð fyrr í mánuðinum. „Arne Johansen, sem kom hingað til lands til að keppa í heimsbikarmótinu í sumar, bauð mér út og leyfði mér að keppa á sínum bíl í flokki sérútbúinna. Það gekk vonum framar og ég lenti í öðru sæti á eftir Arne,“ segir Gunnar og glottir þegar hann rifjar upp viðbrögð hinna keppendanna. „Þeir voru ekki alveg sáttir við að einhver Íslendingur mæti á staðinn og taki annað sætið á bíl sem hann hefur aldrei keyrt áður.“

Ef til þess kemur að Gunnar fari upp um flokk er hann ekki viss um hvort hann muni byggja nýjan bíl eða breyta Trúðnum. Hann hefur enda reynst mjög vel í gegnum árin því að bíllinn er í grunninn sá sami og hann byrjaði að keppa á fyrir sex árum.