Gunnar Þorsteinsson í U-17 landsliðinu
Gunnar Þorsteinsson hefur verið valinn í U-17 landsliðið sem spilar í milliriðli EM í Ungverjalandi á næstu dögum. Gunnar spilaði fjóra leiki með U-17 á síðasta ári þar sem hann bar fyrirliðabandið á Norðurlandamótinu.
Þá hefur Bergsteinn Magnússon, markvörður úr Keflavík, einnig verið valinn í U-17 landsliðið sem spilar í milliriðli EM á næstu dögum. Bergsteinn hefur einnig borið fyrirliðabandið og það á síðasta ári í undankeppni EM.
Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru Rúmenía, Ungverjaland og Rússland. Fyrsti leikurinn er gegn Rúmenum 24. mars, við heimamenn verður leikið 26. mars og lokaleikurinn í riðlinum er gegn Rússum, þriðjudaginn 29. mars. Efsta þjóðin í riðlinum tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Serbíu.
Mynd umfg.is