Íþróttir

Gunnar tekur við kvennaliði Keflavíkur
Gunnar og Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar handsöluðu samninginn.
Sunnudagur 4. október 2015 kl. 10:35

Gunnar tekur við kvennaliði Keflavíkur

Gunnar Magnús Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistarflokks kvenna til næstu tveggja ára. Gunnar hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
Gunnar Magnús er Keflvíkingur í húð og hár og fyrrverandi leikmaður félagsins.  Hann hefur lengi starfað við þjálfun yngri flokka hjá Keflavík. Þá þjálfaði Gunnar meistaraflokk kvenna hjá Grindavík um árabil og lið Njarðvíkur á árunum 2011-2013.

Kvennaknattspyrnan hefur átt undir högg að sækja í Keflavík á undanförnum árum en liðið fékk aðeins eitt stig í b-riðli 1. deildar í sumar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024