Gunnar Stefánsson hættur hjá KR
Körfuknattleiksmaðurinn Gunnar Stefánsson hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir KR-inga því honum finnst að hann hafi ekki fengið fullnægjandi tækifæri til þess að sanna sig með Vesturbæjarliðinu.
Gunnar gekk til liðs við KR fyrir þessa leiktíð frá Keflavík en í ár hefur hann fengið fá tækifæri hjá Benedikt Guðmundssyni, þjálfara KR.
KR-ingar eru í 3. sæti Iceland Express deildarinnar og hefur liðið mátt þola nokkra blóðtöku í þeim Gunnari, Ólafi Má Ægissyni, Eldi Ólafssyni, Steinari Kaldal og Níels P. Dungal.
Óvíst er hvað er framundan hjá Gunnari í körfuboltanum en víst þykir að mörg lið á landinu gætu vel hugsað sér að nýta hans krafta innan sinna raða.