Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Gunnar Stefáns ráðinn aðstoðarþjálfari Keflavíkur
Sævar Sævarsson, varaforformaður KKDK, og Gunnar Hafsteinn Stefánsson við undirritun samningsins.
Laugardagur 29. júní 2013 kl. 11:04

Gunnar Stefáns ráðinn aðstoðarþjálfari Keflavíkur

Meistaraflokkur Keflavíkur í körfuknattleik hefur gengið frá samningi við Gunnar Hafstein Stefánsson um að aðstoða Andy Johnston með þjálfun karlaliðs félagsins í vetur.

Gunnar þarf vart að kynna fyrir stuðningsmönnum félagsins né áhugamönnum um íslenskan körfuknattleik enda kappinn með áralanga reynslu sem leikmaður Keflavíkur. Gunnar hóf að leika með meistaraflokki félagsins árið 1995 en lauk sínum ferli árið 2012. Gunnar lék allan sinn feril með Keflavík, að undanskildum tveimur árum, og er hann einn leikjahæsti leikmaður í sögu Keflavíkur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar er gríðarlega ánægð með að Gunnar var tilbúinn í þetta verkefni þegar leitað var til hans enda þarf vart að fjölyrða um þá reynslu sem kappinn býr yfir auk þess sem hann þekkir alla innviði klúbbsins eins og best verður á kosið. Þó Gunnar sé hér að stíga sín fyrstu skref í þjálfun hjá meistaraflokki er kappinn enginn nýgræðingur á sviði þjálfunar þar sem hann hefur nokkra reynslu í þjálfun yngri flokka hjá félaginu.

Keflavik.is