HSS
HSS

Íþróttir

Gunnar smyglaði sér inn á völlinn
Mánudagur 22. júlí 2013 kl. 09:24

Gunnar smyglaði sér inn á völlinn

Sjónvarpsmaðurinn Gunnar Sigurðsson, betur þekktur sem Gunnar á Völlum, leit við á leik Keflavíkur og FH í Pepsi-deildinni á laugardag. Gunnar og myndatökumaður hans komu þó ekki inn hjá miðasölunni eins og aðrir gestir vallarins, heldur klifruðu þeir yfir girðingu við Hringbraut þar sem áður var miðasala og inngangur. Ljósmyndari Víkurfrétta náði af þeim myndum þegar þeir klöngruðust yfir girðinguna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fannar myndatökumaður stökk yfir án teljandi erfiðleika.

Gunnar mættur á völlinn.