Gunnar Oddsson: „Með mannskap til þess að fara upp“
Reynir Sandgerði vann góðan heimasigur á Sindra síðastliðinn laugardag, 4-1, í B-riðli í 3. deild karla í knattspyrnu. Reynismenn eru því komnir í 2. sæti riðilsins með 16 stig, tveimur stigum á eftir Sindra en Reynir á leik til góða.
Mörk Reynismanna gerðu þeir Hafsteinn Friðriksson, Óli Ívar gerði annað markið, Adolf Sveinsson gerði þriðja markið og Guðmundur Gísli Gunnarsson gerði fjórða og síðasta mark Sandgerðinga.
Gunnar Oddsson, þjálfari Reynis, var að vonum sáttur við sigurinn. „Við höfum verið að spila vel undanfarið og við hefðum getað skorað fleiri mörk í leiknum á laugardag en nýttum ekki nægilega vel þau færi sem við fengum. Það hefur verið markmið okkar frá fyrsta degi að komast upp í aðra deild, nú þurfum við að halda uppteknum hætti og ekki missa einbeitninguna. Við erum með mannskap til þess að fara upp,“ sagði Gunnar að lokum.
Reynir leikur næst gegn Ægi á Sandgerðisvelli miðvikudaginn 27. júlí og hefst leikurinn kl. 20:00.
Staðan í deildinni