GUNNAR MEISTARI GÖTUBÍLA
Gunnar Gunnarsson á Trúðnum fór með sigur af hólmi í þriðju og síðustu umferð DV-Sport heimsbikarmótsins í torfæruakstri sewm fram fór í marlarnámum við Grindavík á laugardaginn. Gunnar keppti í götubílaflokki og háði harða keppni. Um miðbik keppninnar á laugardag varð þó ljóst að Gunnar var kominn með örugga forystu og í síðustu þraut var það eina markmiðið að komast sem lengst upp í snarbratta brekkuna til að tryggja meistaratitilinn. Það gerði Gunnar með tilþrifum og velti bílnum og braut öxul.Nánar verður fjallað um torfæruna og Trúðinn í næsta tölublaði Tímarits Víkurfrétta, TVF, sem nú er í vinnslu.